Barnið  eftir Jón Trausta er sjálfstætt framhald sögunnar Höllu og fyrsta bókin í  ritröðinni Heiðarbýlið sem samanstendur af fjórum bókum.  Hefst hún þar sem sögunni Höllu sleppir.  Sögurnar nutu gríðarlegra vinsælda á sínum  tíma, en segja má að með þessum sögum sínum hafi Jón Trausti haslað sér völl  sem fyrsti metsöluhöfundur Íslands.   Sögurnar rekja líf og örlög fólks við erfiðar aðstæður í sveit, en þann  veruleika þekkti höfundur vel. Skapar hann í sögunum ógleymanlegar persónur og  samfélag og lýsingar hans á náttúrunni og umhverfinu á heiðinni eru hreint út  sagt stórkostlegar.  
          Til marks um það hvað Jón Trausti átti stóran sess í hjörtum  sinnar samtíðar má t. a. m. vitna í orð Halldórs Kiljans Laxness úr bókinni Í túninu heima. Þar segir:  „Jón Trausti, Guðmundur Magnússon frá  Hrauntanga í Öxarfjarðarheiði, stendur mér fyrir hugskotssjónum sem einn mestur  undramaður að verið hafi í íslenskri sagnasmíð fyrr og síðar.  Allir vetur mínir heima eru tengdir  minningunni um nafn þessa manns og verka hans."
- 
            
            
 - HÖFUNDUR:
 - Jón Trausti
 - ÚTGEFIÐ:
 - 2011
 - BLAÐSÍÐUR:
 - bls. 201
 





Heiðarbýlið III - Fylgsnið
Heiðarbýlið IV - Þorradægur
 FLETTIBÓK
 ePUB: Niðurhal
 iPad /iPod / iPhone